Einn fluttur alvarlega sár á sjúkrahús eftir líkamsárás sjö manna

Einn er með töluverða áverka eftir líkamsárás í Túnunum í Reykjavík í nótt. Sjö voru handteknir fyrir alvarlega líkamsárás um klukkan hálf tvö í nótt og færðir í fangaklefa. Þeir höfðu ráðist á tvo einstaklinga. Annar þeirra sem urðu fyrir árásinni var færður á sjúkrahús vegna áverka sinna og er talsvert mikið meiddur, að sögn Unnars Más Ástþórssonar, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Mennirnir sjö eru allir enn í haldi lögreglu. Þeir verða yfirheyrðir í dag vegna rannsóknar líkamsárásarinnar sem er á frumstigi.