Í minningu Jürgen Habermas, eins mesta hugsuðar sam­tímans

Ég hafði vonast til að skrifa þessa grein árið 2029, í tilefni þess að Jürgen Habermas yrði 100 ára, en því miður varð það ekki raunin. Þýski heimspekingurinn og félagsfræðingurinn og einn áhrifamesti hugsuður samtímans, lést um síðustu helgi, 96 ára að aldri. Hann skilur eftir sig vitsmunalegt tómarúm sem erfitt verður að fylla. Ljóst er þó að framlag Habermas til stjórnmálaheimspekinnar mun halda áfram að hafa áhrif á komandi kynslóðir fræðimanna á fjölmörgum sviðum félagsvísinda, líkt eins og það hafði áhrif á núlifandi kynslóð.