Reykja­víkur­borg skilar auðu

Viðbrögð Reykjavíkurborgar við Bakkakotsmálinu hafa hingað til einkennst af einu. Þögn. Þegar spurt er um málið eru svörin fá, almenn og varfærin. Borgin ber fyrir sig að gögnin séu grafin í skjalageymslum og þau viti í raun ekkert hvar þau séu, tefla svo fram embættisfólki til þess að fegra hlutina og þykjast vera að gera betur.