Á laugardaginn hófust íbúakosningar um tillögu um sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps. Kosningarnar munu standa yfir til 28. mars næstkomandi og þeir íbúar sveitarfélaganna sem náð hafa 16 ára aldri fyrir lok kosningatímabilsins mega greiða atkvæði. Fram kemur í fréttatilkynningu frá samstarfsnefnd um sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps að kjósendur geta greitt atkvæði á kjörstöðum sem auglýstir […]