Íran vill að leikir sínir á HM verði færðir til Mexíkó

Íran er með þátttökurétt á HM í fótbolta sem verður leikið í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó í sumar. Dregið var í riðla í lok síðasta árs og dróst Íran í G-riðil og á samkvæmt plani að leika við Nýja-Sjáland í Los Angeles 15. júní og við Belga á sama stað sex dögum síðar. Lokaleikur Írana á svo að vera við Egypta í Seattle 26. júní. Í kjölfar innrásar Bandaríkjanna í Íran hefur svo verið haft eftir Donald Trump Bandaríkjaforseta að hann geti ekki tryggt öryggi íranska landsliðsins á HM . Nú hefur sendiráð Íran í Mexíkó sent frá sér yfirlýsingu vegna þessa sem meðal annars hefur verið birt af AFP og Reuters fréttastofunum. Fara ekki til Bandaríkjanna við núverandi aðstæður Í henni er haft eftir Mehdi Taj forseta íranska knattspyrnusambandsins að ekki komi til greina fyrir landslið Íran að ferðast til Bandaríkjanna við núverandi aðstæður. „Þegar Donald Trump hefur sjálfur sagt að hann geti ekki tryggt öryggi íranska landsliðsins, er ljóst að við munum ekki ferðast til Bandaríkjanna,“ er haft eftir Taj í yfirlýsingu sem birt var á samfélagsmiðlum sendiráðsins. Hann segir jafnframt að viðræður standi nú yfir við Alþjóða knattspyrnusambandið, FIFA, um að leikir Írans á mótinu fari fram í Mexíkó. Forseti FIFA, Gianni Infantino, sagði í síðustu viku að Donald Trump hefði fullvissað sig um að Íran væri velkomið til þátttöku á mótinu. Skömmu síðar lét bandaríski forsetinn þó hafa eftir sér að það væri óviðeigandi ef Íran tæki þátt í lokakeppninni.