Ísraelsher segist hafa drepið yfirmann Basij, öryggissveitar stjórnvalda í Íran. Hann er sagður hafa farið fyrir aðgerðum þegar fjölmenn mótmæli voru brotin á bak aftur fyrr á árinu þegar tugþúsundir manna voru drepnar og handteknar. Ísraelskir fjölmiðlar segja að Ali Larijani, yfirmaður öryggisráðs Írans, hafi einnig verið skotmark árásanna. Israel Katz, varnarmálaráðherra Ísraels, segir hann hafa verið drepinn. Íran hefur ekki staðfest þetta. Samkvæmt AFP-fréttaveitunni er Larijani háttsettasti Íraninn sem ráðinn hefur verið af dögum síðan Ali Khamenei æðstiklerkur og aðrir ráðamenn voru drepnir í árásum 28. febrúar. Ali Larijani er sagður hafa verið ráðinn af dögum í árásum í nótt.AP / Bilal Hussein