Al­var­legt að svo ill með­ferð á dýrum sé metin refsilaus

Linda Karen Gunnarsdóttir, formaður Dýraverndunarsambands Íslands, DÍS, segir niðurstöðu umboðsmanns Alþingis um blóðmerahald mikil vonbrigði. Með því að gera ekki neinar athugasemdir við eftirlit Matvælastofnunar, MAST, sé ill meðferð á dýrum metin refsilaus.