Innviðir helsta skotmarkið ef árás yrði gerð á landið

Það skiptir meira máli nú en nokkru sinni fyrr að byggja upp áfallaþolið samfélag og tryggja að innviðir séu sterkir og öruggir að mati Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra. Orkuinnviðir séu ekki aðeins grundvöllur efnahagslegrar þróunar og lífsgæða heldur einnig lykilþáttur í sjálfstæði Íslands. Þetta kom fram í ræðu Þorgerðar á opnum ársfundi Samorku sem haldinn er í Borgarleikhúsinu í dag. „Þróunin í alþjóðamálum hefur sýnt okkur að aðgangur að öruggri og áreiðanlegri orku getur skipt sköpum fyrir stöðugleika samfélaga. Því eru sterkir innviðir ein af mikilvægustu forsendum þess að lítið og um leið opið samfélag eins og Ísland geti staðið sterkt í breyttri heimsmynd og geti haldið áfram að vaxa og dafna,“ segir Þorgerður. Megum ekki hunsa fjölþáttaógnir Hún segir öryggisumhverfi Evrópu og heimsins alls hafa breyst og það hratt. Alþjóðakerfið standi frammi fyrir alvarlegum áskorunum. Spenna milli ríkja heims hafi aukist og átök og stríð geisi of víða. „Við sem þjóð úti í miðju Atlantshafi höfum kannski hingað til talið okkur geta búið við það öryggi að vera landfræðilega langt frá heimsins vígaslóðum, en fjölþáttaógnir og aðrar öryggisráðstafanir nútímans hafa gert það að verkum að við getum ekki verið blind gagnvart þeim ógnum og jafnframt þeim vörnum sem þörf er á að byggja á og byggja upp í hverju samfélagi,“ segir Þorgerður. Stjórnvöld og einkageirinn þurfi að vinna saman Mikilvægt sé að efla áfallaþol íslensks samfélags. Stjórnvöld hafi unnið að því undanfarið ár. „Ef árás yrði gerð á Ísland þá verður það að mínu mati ekki í formi hefðbundins landhernaðar eins og við gjarnan sjáum fyrir okkur sem fyrstu árás, heldur atlaga að innviðum, orkumannvirkjum, neðansjávarstrengjum, ratsjárstöðvum, internetinu og okkar tengingu við umheiminn eða jafnvel í formi upplýsingaóreiðu eins og við sjáum raunar nú þegar.“ Hún segir eflingu áfallaþols verkefni sem þurfi að vinna þvert á stjórnkerfið, ráðuneyti, stofnanir og með einkageiranum. Stjórnvöld geti ekki ein tryggt aukið áfallaþol samfélagsins.