„Við þurfum ekki hjálp frá neinum!“

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir ráðamenn í bandalagsríkjum Bandaríkjanna í Atlantshafsbandalaginu flesta hafa gert sér ljóst að þeir muni ekki taka þátt í hernaðaraðgerðum gegn klerkastjórninni í Íran. Forsetinn segir þetta ekki koma sér á óvart, þar sem hann hafi lengi talið NATO vera einstefnugötu. Þá segir hann að Bandaríkin hafi ekki þurfað hjálp þeirra og þurfi ekki hjálp frá neinum.