Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, hyggst leggja til að þjóðaratkvæðagreiðslunni um áframhaldandi viðræður við ESB verði frestað fram til 17. október. Til stendur að hún fari fram þann 29. ágúst. „Markmið þess er að tryggja viðunandi umræður og kynningu um jafnmikilvæg mál og hér um ræðir, bæði innan þings og utan,“ sagði Guðrún í ræðu sinni á Alþingi í gær. Hún taldi að meiri tíma þyrfti til þess að afgreiða málið í þinginu. Ásamt því ætlar hún einnig að leggja fram þá breytingartillögu að spurningunni sem lögð verður fyrir þjóðina verði breytt. „Spurningin sem lögð er fyrir kjósendur verður að lýsa stöðu málsins í raun og veru. Annars er spurningin villandi og óskýr og niðurstaða kosninganna ómarktæk,“ sagði Guðrún. Hið þriðja sem Guðrún hyggst leggja til er að utanríkismálanefnd leiti til Feneyjarnefndarinnar og fái hjá henni ráðgjöf. Það segir hún að yrði gert til þess að tryggja að orðalag þeirrar spurningar sem lögð verður fyrir þjóðina standist bæði íslensk og alþjóðleg viðmið. „Jafnframt er rétt að fá ráðleggingar um það hvenær eðlilegt væri að leggja fram tillögu um breytingu á stjórnarskránni vegna þessa leiðangurs ríkisstjórnarinnar en aðalatriðið er að kjósendur verða að fá að vita hvað gerist ef þeir segja já í þjóðaratkvæðagreiðslunni,“ sagði Guðrún. Hvað er Feneyjarnefndin? Evrópunefnd um lýðræði með lögum, einnig kölluð Feneyjanefndin, var stofnuð 1990. Hún er ráðgefandi fyrir Evrópuráðið í stjórnarskrármálum og hefur komið að þróun stjórnskipunar í Evrópu og aðlögun stjórnskipunar ESB að evrópskum stjórnskipunum. Hlutverk hennar er meðal annars að veita aðildarríkjum sínum lögfræðiráðgjöf og aðstoða ríki sem vilja samræma lög sín og stofnanir við evrópska staðla. Hún veitti til að mynda álit sitt á stjórnarskrárfrumvarpi stjórnlagaráðs árið 2013. Stefnt á seinni umræðu í maí Fyrri umræðu um þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar lauk í gær rétt fyrir klukkan ellefu. Hún verður tekin fyrir í utanríkismálanefnd áður en hún verður tekin til síðari umræðu. Pawel Bartoszek, formaður nefndarinnar, sagði í dag að stefnt væri á að hún gæti hafist í maí. Þar sem fyrirhugað er að halda þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst þarf lögum samkvæmt að vera búið að samþykkja tillöguna 29. maí. Samkvæmt starfsáætlun þingsins eru fimm þingfundardagar á tímabilinu 18. til 29. maí.