Afkomendur Patrice Lumumbas, fyrsta forsætisráðherra Kongó eftir að landið fékk sjálfstæði frá Belgíu, fögnuðu í dag niðurstöðu dómstóls í Brussel. Dómstóllinn ákvað að rétta ætti yfir Etienne Davignon. Hann er í dag 93 ára gamall eftirlaunaþegi en 1961 var hann lágt settur embættismaður í belgísku utanríkisþjónustunni. Hann er sakaður um að hafa átt þátt í því að Lumumba var tekinn höndum, hann pyntaður og að lokum drepinn. Lumumba átti stóran þátt í umbreytingu Kongó úr belgískri nýlendu í sjálfstætt ríki. Hann naut þess þó ekki lengi. Belgar og Bandaríkjamenn voru ósáttir við framgöngu hans og honum var steypt af stóli nokkrum mánuðum eftir að lýðveldi var lýst yfir. Davignon er sakaður um að hafa átt þátt í því að Lumumba var tekinn höndum og haldið við illan aðbúnað. Þar áttu belgískir málaliðar einnig hlut að máli. Lumumba var að lokum myrtur. Morðingjarnir settu lík hans í sýrubað til að eyða því. Aðeins er vitað til þess að ein tönn sé eftir af líki hans. Hún fannst í fórum dóttur eins þeirra Belga sem áttu þátt í því að láta lík Mumumbas hverfa. Davignon verður fyrsti belgíski embættismaðurinn til að svara til saka fyrir meðferðina á Lumumba. Þetta gerðist í upphafi starfsferils hans. Síðar átti Davignon eftir að verða varaforseti framkvæmdastjórnar Evrópubandalagsins, forvera Evrópusambandsins.