Staða mæðra á ís­lenskum vinnu­markaði: Kerfislægt mynstur sem kallar á við­brögð

Íslenskur vinnumarkaður hefur tekið miklum breytingum í jafnréttisátt undanfarna áratugi. Konur á vinnumarkaði eru bæði fjölmennari og menntaðri en nokkru sinni fyrr og þátttaka þeirra í atvinnulífinu er með því hæsta sem þekkist í heiminum. Samkvæmt nýjustu gögnum eru konur nú 47% allra starfandi og um 78% kvenna á vinnualdri taka þátt á vinnumarkaði.