Þjónusta við börn með vímuefnavanda er að mörgu leyti brotakennd og tryggja þarf að þau lendi ekki milli kerfa. Þetta kemur fram í tillögum starfshóps forsætisráðherra um samþætta þjónustu við börn með vímuefnavanda. Þær voru kynntar á fundi ríkisstjórnar í dag. Starfshópnum var falið að rýna stöðu þjónustu við börn með vímuefnavanda og gera tillögur að úrbótum. Ríkisstjórnin hefur samþykkt að skipa stýrihóp til að fylgja eftir tillögum starfshópsins. Niðurstaða hópsins er meðal annars sú að þrátt fyrir að ýmis úrræði séu til staðar sé þjónustan að mörgu leyti brotakennd eins og hún birtist börnum og fjölskyldum þeirra. Ábyrgðarskipting milli kerfa sé óskýr, samhæfing barnaverndar og heilbrigðisþjónustu sé takmörkuð og lítið sé um úrræði fyrir börn með samsettan vanda. Starfshópurinn telur að til að tryggja árangursríka þjónustu þurfi að byggja upp skýrt og samþætt þjónustukerfi sem nær yfir bráðaþjónustu, meðferð, endurhæfingu og eftirfylgd í samfelldu ferli. Tillögurnar eru sjö og snúa meðal annars að lagabreytingum um aðgengi barna að heilbrigðisþjónustu, eftirlit með þjónustu við börn með vímuefnavanda, aðgengi að meðferðum erlendis og heilbrigðisþjónustu í vistunarúrræðum barnaverndar. Þörf á sérhæfðri meðferð við fjölþættum vanda Hópurinn telur mikilvægt að bregðast við skorti á sérhæfðum úrræðum fyrir börn sem glíma við alvarlegan vímuefnavanda, oft samhliða geðrænum áskorunum eða taugaþroskaröskunum. Því er lagt til samþætt matsteymi Barna- og fjölskyldustofu, barnaverndarþjónustu og Landspítala sem hafi það hlutverk að meta þörf barna fyrir sérhæfða meðferð við samsettum vanda. Slík meðferð geti farið fram erlendis, að minnsta kosti tímabundið, en að hér á landi verði komið á fót fíknigeðdeild fyrir börn með fjölþættan vanda.