Þróun Úkraínumanna og framleiðsla á eigin sjálfsprengidrónum felur í sér að þeir geta nú gert árásir á öll héruð Rússlands. Þetta sagði Sergei Shoigu, forseti þjóðaröryggisráðs Rússlands og fyrrverandi varnarmálaráðherra, á fundi með embættismönnum í dag, þar sem hann sagði að árásum Úkraínumanna á Rússland hefði fjölgað mjög.