Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir að Bandaríkjaher þurfi ekki lengur aðstoð annarra ríkja gegn Íran. Síðustu daga hefur hann beðið nokkur ríki um aðstoð við að tryggja öryggi skipa á leið um Hormússund sem Íranar hafa lokað. Fálega hefur verið tekið í beiðni Trumps um aðstoð á Hormússundi sem er mikilvæg flutningaleið, meðal annars með olíu. „Bandaríkin hafa verið upplýst um það af flestum „bandamönnum“ í NATO að þeir vilji ekki blanda sér í hernaðaraðgerðina okkar gegn hryðjuverkastjórninni í Íran, í Mið-Austurlöndum,“ sagði Trump í færslu á samfélagsmiðli sínum Truth Social í dag. Trump bætti við að vegna þess hversu vel hernaðurinn í Íran hafi gengið hvorki þurfi né vilji Bandaríkin aðstoð NATO-ríkja. Þá skrifar hann í hástöfum að Bandaríkin hafi í raun aldrei þurft á neinni slíkri aðstoð að halda. Emmanual Macron, forseti Frakklands, ítrekaði í dag að Frakkar myndu ekki taka þátt í aðgerðum til að opna siglingaleiðina um Hormússund. Hann gaf þá ástæðu að því fylgdi mikil hætta, meðal annars vegna loftárása. Frakkland myndi geta tekið þátt í að fylgja flutningaskipum síðar, í samvinnu við önnur ríki, þegar spenna hefur minnkað. Bretar hafa sömuleiðis tekið fálega í beiðni Trumps um aðstoð og sagði hann í dag að Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, hafi ekki valið rétt þegar hann hafnaði stuðningnum. „Hann hefur ekki veitt mikinn stuðning og ég tel það hafa verið mikil mistök,“ sagði Trump við fréttamenn í Hvíta húsinu í dag. „Keir hefur valdið mér vonbrigðum. Mér líkar við hann, hann er fínn gaur en ég er vonsvikinn.“