Yfirdýralæknir MAST telur að stjórnvöld ættu að endurskoða lög sem heimila loðdýrarækt hér á landi, líkt og víða hefur verið gert í Evrópu. Ljóst sé að dýrin geti ekki sýnt sitt náttúrulega eðli á meðan þau eru lokuð inni í litlum búrum. Myndir sem teknar voru á minkabúum á Íslandi varpa ljósi á aðbúnað minka, þar sem þeir sjást meðal annars sárir og blóðugir. Myndirnar, sem birtar verða í Kveik í kvöld, eru teknar af finnskum dýraverndarsinnum í október og nóvember, á þremur minkabúum af sex sem þá voru starfrækt hér á landi. Búin eru öll hætt starfsemi, af fjárhagslegum ástæðum. „Mér fannst mjög leiðinlegt að sjá þessar myndir og sérstaklega í ljósi þess að þessi bú sem nú eru reyndar hætt starfsemi, að þessi bú var farið í eftirlit ekki mjög löngu áður og það var eftirfylgni þar, á sumum búunum fundust brot á velferð dýra. Ekki á öllum. En það er sorglegt að þær áréttingar hafi ekki leitt til meiri langvarandi áhrifa heldur en við sjáum á þessum myndum,“ segir Þóra Jóhanna Jónasdóttir, yfirdýralæknir MAST. Blóðugir og sárir minkar sem farnir eru að naga sig inn að beini er á meðal þess sem sést á myndefni sem tekið var á loðdýrabúum hér á landi. Yfirdýralæknir MAST telur að endurskoða ætti lög sem heimila loðdýrarækt. Myndirnar sýna blóðuga og sára minka, sem sumir eru farnir að naga á sér skottið. Ástæðan fyrir því er almennt streita og kvíði, sem Þóra segir fylgja því að loka dýr inni í búri. Dýr sem í eðli sínu séu villt. „Það er er nokkuð ljóst að sum bú eru meiri vandræðabú en önnur, það hafa verið margar og sumar alvarlegar athugasemdir við þá starfsemi,“ segir Þóra. Loðdýrarækt hefur að mestu lagst af hér á landi, og nær allar þjóðir innan Evrópusambandsins hafa lagt bann við loðdýrarækt, sem ýmist hefur þegar tekið gildi eða tekur gildi á næstu árum. Þóra telur að íslensk stjórnvöld ættu að íhuga að fara sömu leið. „Ég held að stjórnvöld þurfi að taka til skoðunar á hverju ákvörðun um svona starfsemi sé byggð, það hefur verið bylgja í allri Evrópu að taka það til skoðunar og ég held að íslensk stjórnvöld þurfi líka að gera það,“ segir Þóra. Ítarleg umfjöllun um myndefnið og loðdýrarækt á Íslandi í Kveik klukkan 20.15.