Kærir úrskurð héraðsdóms um vanhæfi sem skiptastjóri

Unnur Lilja Hermannsdóttir, annar tveggja skiptastjóra hjá þrotabúi flugfélagsins Play, hefur kært úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að víkja þyrfti henni úr starfi vegna fjölskyldutengsla. MBL.is greinir frá þessu. Héraðsdómur tók málið fyrir eftir að Birta lífeyrissjóður krafðist þess að Unni yrði vikið sem skiptastjóri. Í úrskurði héraðsdóms segir að Birta telji Unni Lilju vanhæfa til að gegna starfi skiptastjóra þrotabús Play vegna fjölskyldutengsla við lögmannsstofuna BBA Fjeldco og fjárhagslegra hagsmuna sem stofan muni hafa af gjaldþrotaskiptunum. Tómas Magnús Þórhallsson, eiginmaður Unnar Lilju, er einn af eigendum BBA Fjeldco. Unnur Lilja Hermannsdóttir fyrrum skiptastjóri Play.Landslög