Nú liggur fyrir að þjóðin mun greiða atkvæði um hvort haldið verði áfram aðlögunarviðræðum við Evrópusambandið síðla sumars. Kosningarnar verða haldnar, að öllu óbreyttu, síðasta laugardaginn í ágúst og mun því spurningin um aðild Íslands að Evrópusambandinu keppa við kjötsúpuhátíðina á Hvolsvelli og bæjarhátíðina Í túninu heima í Mosfellsbæ um athygli landsmanna.