Skoða veggjöld á öllum leiðum frá höfuðborgarsvæðinu

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur til skoðunar að hefja gjaldtöku á ný við Hvalfjarðargöng. Þá er til skoðunar að taka upp veggjöld á Reykjanesbraut og Suðurlandsvegi en með því yrðu veggjöld innheimt á öllum helstu leiðum til og frá höfuðborgarsvæðinu.