Kjartani og Mörtu vikið úr ráðum og nefndum

Kjartani Magnússyni og Mörtu Guðjónsdóttur, fyrrum borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins, var í kvöld vikið úr ráðum og nefndum á fundi borgarstjórnar. Málið var ekki sérstaklega á dagskrá borgarstjórnar en borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins óskuðu eftir því að það yrði tekið fyrir. Samþykkt var að tillagan fengi fram að ganga með atkvæðum ellefu fulltrúa meirihlutans og fjögurra borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og eins borgarfulltrúa Viðreisnar, alls sextán atkvæðum. Kjartan og Marta kusu gegn en fjórir fulltrúar Framsóknarflokksins sátu hjá. Kjartan og Marta yfirgáfu Sjálfstæðisflokkinn og gengu til liðs við Miðflokkinn fyrir tæpum tveimur vikum. Óskað var eftir því að endurskipað væri í borgarráð, umhverfis- og skipulagsráð, menningar- og íþróttaráð, velferðarráð, mannréttindaráð, skóla- og frístundaráð, innkaupa- og framkvæmdaráð og heilbrigðisnefnd ásamt kjöri varaforseta og varamanna í forsætisnefnd. Kjartan og Marta sátu í þremur ráðum en stokka þurfti upp í fleiri nefndum vegna fráhvarfs þeirra. Taldi tillöguna ekki tæka til afgreiðslu Kjartan Magnússon tjáði sig um málið á fundi borgarstjórnar. „Við mótmælum málsmeðferðinni í þessu máli og teljum að tillagan sé ekki tæk til afgreiðslu. Það er greinilegt að hún hefur verið lögð fram með mjög hroðvirknislegum hætti og borgarfulltrúum hefur gefist afar lítill tími til að kynna sér tillöguna,“ sagði hann. Þá sagði hann að tillöguflutningurinn gengi í berhögg við samþykktir um stjórn borgarinnar og fundarsköp borgarstjórnar. „Það er í 10. grein skýrlega kveðið á um að það eigi að tilkynna forsætisnefnd skriflega um mál sem óskað er eftir að verði tekin á dagskrá, sagði Kjartan og tók fram að sérstaklega væri kveðið á um að þegar kjósa eigi til ráða samkvæmt dagskrá borgarstjórnar skuli senda forsætisnefnd þau nöfn sem lagt er til að taki sæti. „Þessum formsatriðum hefur ekki verið fullnægt,“ sagði Kjartan sem tók fram að markmið tillagnanna væri að útiloka tvo borgarfulltrúa frá nefndarstörfum og frá vettvangi borgarstjórnar. Marta Guðjónsdóttir tjáði sig einnig og fór fram á að málinu yrði frestað eða þá að stutt hlé yrði gert svo forsætisnefnd gæti komið saman. Ekki var orðið við því. Hún gerði þá einnig athugasemd við að sérstakt að hlé hefði verið gert fyrr á fundinum áður en að hennar beiðni væri hafnað.