Yfirmaður öryggissveitar íranskra stjórnvalda ráðinn af dögum

Íranski byltingarvörðurinn segir Gholamreza Soleimani hafa verið ráðinn af dögum í árás Ísraela á Íran. Soleimani var yfirmaður Basij, öryggissveitar stjórnvalda í Íran. Ísraelar greindu frá því fyrr í dag að þeir hefðu banað Soleimani í loftárás en Íranski byltingarvörðurinn staðfesti fregnirnar í kvöld. Gholamreza Soleimani. Myndin er frá árinu 2019.AP / Ebrahim Noroozi