Ísland vann Portúgal í undankeppni EM kvenna í körfubolta í kvöld, 62-60. Sara Rún Hinriksdóttir skoraði 16 stig í leiknum og hún ræddi við Stofuna beint eftir leik: „Mér fannst þetta bara mjög skemmtilegt, ég veit ekki með ykkur.“ Ísland tapaði fyrir Serbíu í síðustu viku eftir að hafa átt frábæran fyrri hálfleik en ekki nægilega góðan seinni hálfleik. Nú átti Ísland aftur flottan fyrri hálfleik og tókst að fylgja því eftir í þeim seinni: „Við töluðum um að við ætluðum ekki að láta þetta gerast aftur. Við keyrðum aðeins upp í upphitun, það er ekki oft sem maður gerir það í hálfleik, en við vorum tilbúnar í þetta.“ Nánar er rætt við Söru í spilaranum hér fyrir ofan.