Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir fjármagn fyrir framkvæmdaáætlun um uppbyggingu hjúkrunarrýma vera til í ríkissjóði þótt kostnaður við uppbygginguna liggi ekki fyrir. Lengi hafi verið mikil þörf á hjúkrunarrýmum og fjármagn því verið tekið frá fyrir fjárfestingar til uppbyggingar þeirra. Þá bendir Daði Már á að sparnaður sé fólginn í uppbyggingu hjúkrunarrýma. Það létti á byrðum heilbrigðiskerfisins sem sinni í dag hluta þess fólks sem bíður eftir hjúkrunarrými og kosti ríkissjóð hærri fjárhæðir. „Varðandi reksturinn þá er það auðvitað þannig að að stórum hluta notum við í dag heilbrigðiskerfið, sjúkrahúsin, sérstaklega Landspítalann, til þess að sinna hlutverki sem raunverulega gerir honum erfiðara fyrir, er miklu mun dýrari þjónusta en sú sem hægt er að veita á þessum stofnunum,“ segir Daði Már. Ráðherrann ræddi fjármögnun framkvæmdaáætlunarinnar í sjónvarpsfréttum í kvöld. Fjármálaráðherra segir fjármögnun framkvæmdaáætlunar um uppbyggingu hjúkrunarrýma tryggða. Mikilvægt sé að áætlunin gangi eftir svo þjónustan sé ekki veitt í gegnum dýrari leiðir. Launamál ákveðin við samningsborðið Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra hafði orð á því í gær að það gæti komið til skoðunar að hækka laun þeirra sem starfa á hjúkrunarheimilum til að manna þau hjúkrunarheimili sem áætlað er að rísi eigi síðar en 2030. Daði Már segir það ekki hafa verið rætt að hækka laun þessa hóps. Launamál séu ákveðin við samningsborðið og langt sé í að samningar losni. „Mjög mikilvægt að þessi plön gangi eftir“ Aðspurður um heildarkostnað við framkvæmdaáætlunina segist Daði Már ekki hafa þá tölu á reiðum höndum. „En þetta dreifist auðvitað yfir nokkur ár. Við erum með tvær lausnir í gangi, annars vegar leiguleið og hins vegar uppbyggingu. Það fer svolítið eftir því hvernig skiptingin verður á milli þessara tveggja liða hversu mikil fjárfestingin verður og hvað mun koma í gegnum leigu síðar.“ Stór hængur er á ef ekki er búið að tryggja mönnunina. Verður gert ráð fyrir öllu þessu í fjármálaáætlun til 2031? „Já, það er gert ráð fyrir viðbótum í mönnun. Nú er það þannig að sá liður heitir undir annað ráðuneyti, heilbrigðisráðuneytið, en það er gert ráð fyrir viðbótum þar til þess að mæta þeim kostnaði,“ segir Daði Már. „Ég held að það sé mjög mikilvægt að þessi plön gangi eftir. Ég held að það sem hefur þegar áunnist sýni að þessari ríkisstjórn er full alvara í að ná þessum árangri. Í dag þá erum við annaðhvort ekki að veita þjónustuna eða að veita þjónustuna í gegnum miklu mun dýrari leiðir,“ segir Daði Már. Áætlunin sé raunhæf.