Yfir 120 snjóflóð fallið síðan á fimmtudag

Veðurstofu Íslands hafa borist tilkynningar um yfir 122 snjóflóð sem fallið hafa á Vestfjörðum og Tröllaskaga síðan á fimmtudag í síðustu viku. Það hefur verið óvissuástand vegna snjóflóðahættu á Tröllaskaga og Vestfjörðum meira og minna í tæpa viku. Á fimmtudag snjóaði mikið í norðaustanátt og þá tóku að falla snjóflóð. Síðan hvessti á sunnudag og þá safnaðist snjór fyrir í hlíðum og lægðum og mörg snjóflóð féllu aftur. Snjóflóðin sem enginn sér falla Harpa Grímsdóttir, deildarstjóri ofanflóðadeildar Veðurstofu Íslands, segir snjóflóðin bundin við norðanverða Vestfirði, yfir á strandir og utanverðan Tröllaskaga norðan Dalvíkur. Önnur svæði landsins hafi sloppið. Veðurstofan hefur skráð hjá sér yfir 122 snjóflóð síðan á fimmtudag. „Þetta eru þá snjóflóð sem við höfum náð að sjá og skrá. Við gerum ráð fyrir að það hafi mun fleiri flóð fallið á stöðum þar sem enginn sér þau og þá eru þau ekki skráð. Eða þau hafa bara fallið í slæmu skyggni, í slæmu veðri, áður en nokkur nær að sjá þau. Þá er kannski um að ræða frekar svona minni flóð,“ sagði Harpa í Speglinum í kvöld. Veðurstofunni hefur borist tilkynningar um fleiri snjóflóð síðan rætt var við Hörpu. Tómas Jóhannesson, ofanflóðasérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir þau hafa fallið fyrr í hrinunni en ekki verið skráð fyrr en í kvöld. „Enn eru að berast fréttir af flóðum sem hafa fallið fyrr í hrinunni sem menn eru fyrst núna að verða varir við,“ segir Tómas fréttastofu. Það er til dæmis snjóflóð sem féll yfir borholu hitaveitunnar í Skútudal, austan við Siglufjörð. Þar eru nokkrir dæluskúrar fyrir veituna, en Tómas bendir á að þeir séu sérstaklega styrktir til að þola snjóflóð. Það hafi þeir margsinnis gert.