„Við mættum með brjálaða baráttu í leikinn frá fyrstu mínútu og gáfumst aldrei upp. Ég er svo ánægð með að okkur hafi loksins tekist að ná heilum góðum leik,“ sagði Danielle Rodriguez leikmaður íslenska kvennalandsliðsins eftir sætan 62:60 sigur á Portúgal í lokaleik liðsins í undankeppni EM í kvöld.