Stefán Þór Eysteinsson bæjarfulltrúi er oddviti Samfylkingarinnar og annars félagshyggjufólks í Fjarðabyggð fyrir sveitarstjórnarkosningar 16. maí. Framboðslistinn var samþykktur á félagsfundi í Neskaupstað í kvöld. Í fréttatilkynningu frá Samfylkingunni segir að framboðið hvíli á grunni klassískrar jafnaðarstefnu og félagshyggju. Hjördís Helga Seljan bæjarfulltrúi er í 2. sæti listans og Valborg Ösp Árnadóttir Warén stjórnmálafræðingur er í 3. sæti hans. Í 4. sæti er Adam Ingi Guðlaugsson vélfræðingur og 5. sætið skipar Arndís Bára Pétursdóttir aðstoðarskólastjóri.