Leikfélagið Verðandi í Fjölbrautaskóla Garðabæjar setti nýverið upp Broadway-söngleikinn Ljóska í gegn , sem byggir á samnefndri kvikmynd frá 2001. Fleiri tugir nemenda koma að sýningunni með einum eða öðrum hætti. Í skólanum er leiklistarbraut sem hefur komið sér vel að sögn aðalleikaranna. „Við mælum með henni fyrir alla sem hafa áhuga á leiklist,“ segir Katla Borg Stefánsdóttir, sem fer með hlutverk ljóskunnar Elle Woods. Katla er inni á sviðinu í öllum senum og fer aðeins baksviðs til að skipta um búning. Hún klæðist alls 15 búningum og 10 pörum af skóm. Það er ljóst að krakkarnir ganga í öll störf en formaður leikfélagsins hannaði búningana. Krakkafréttir kíktu í FG og fengu að skyggnast baksviðs.