Dánaraðstoð áfram ólögleg í Skotlandi

Meirihluti þingmanna á skoska þinginu í Holryood hafnaði í dag frumvarpi þess efnis að gera dánaraðstoð löglega í landinu. Frumvarpið kvað á um að aldraðir Skotar með banvæna sjúkdóma, sem ekki er talið að eigi meira en hálft ár eftir ólifað, gætu notið aðstoðar við að enda líf sitt. Frumvarpið var fellt með 69 atkvæðum gegn 57 atkvæðum á móti eftir um tveggja klukkustunda umræðu. Frumvarpið var upphaflega kynnt í mars árið 2024. Það var samþykkt eftir fyrstu umræðu í maí í fyrra en þá greiddu 70 atkvæði með því og 56 gegn því. Var það í þriðja sinn sem skoska þingið fjallaði um frumvarp um dánaraðstoð. Skoska þinghúsið er í Holyrood í Edinborg.EPA / MAURITZ ANTIN