Tveir drepnir í loftárás á Tel Aviv og öflugum sprengjum beitt á eldflaugastöð

Tveir voru drepnir í eldflaugaárás Írana á og nærri ísraelsku stórborginni Tel Aviv í kvöld. Björgunarsveitir og lögregla hafa brugðist við tilkynningum um skemmdir af völdum árásanna víðs vegar um borgina og nágrenni hennar. Í tilkynningu Rauðu Davíðsstjörnunnar segir að fólkið hefði fundist illa sært í stórskemmdri byggingu og verið úrskurðað látið á staðnum. Alls hafa því 14 verið drepnir í Ísrael frá upphafi stríðsins 28. febrúar. Öflugum sprengjum beint að eldflaugastöð Írana Yfirstjórn Bandaríkjahers kveðst hafa skotið mörgum af einhverjum öflugustu sprengjunum úr vopnabúri sínu að írönskum eldflaugastöðvum nærri Hormússundi. Íranski byltingarvörðurinn hefur nær algerlega stöðvað ferðir skipa um Hormússund, sem annar um fimmtungi allra olíuflutninga veraldar. Í yfirlýsingu hersins á X segir að skotflaugar Írana hafi ógnað skipaumferð um sundið og því hafi 5 þúsund punda djúpsprengjum sem kosta 288 þúsund bandaríkjadali hver, samkvæmt samantekt Air Force Times fyrir fjórum árum. Ísrael gerir stórfelldar loftárásir á Beirút Ísraelsher hóf stórfelldar árásir á miðborg Beirút í Líbanon í nótt og einnig suðurhluta borgarinnar, eitt af höfuðvígjum Hezbollah-hreyfingarinnar. Herinn tilkynnti ekki um árásirnar fyrir fram, líkt og venjan hefur verið, að sögn líbanskra fréttamiðla. Þeir segja eldflaug hafa hæft íbúðabyggingu í hverfinu Zuqaq al-Blat, þar sem Ísraelsher gerði í síðustu viku árás á útibú fjármálafyrirtækisins Al-Qard Al-Hassan, sem hefur sterk tengsl við Hezbollah. Skammt undan eru margar stjórnarskrifstofur og nokkur sendiráð erlendra ríkja. Líbanon sogaðist inn í styrjöldina 2. mars þegar liðsmenn Hezbollah skutu eldflaugum að Ísrael í hefndarskyni fyrir dráp herja Ísraels og Bandaríkjanna á Ali Khamenei, æðsta leiðtoga Írans. Dróni hæfði bandaríska sendiráðið í Bagdad Dróni hæfði byggingu bandaríska sendiráðsins í íröksku höfuðborginni Bagdad í nótt. AFP-fréttaveitan hefur eftir öryggisfulltrúa að dróninn hafi skollið beint á byggingunni án þess að tiltaka hvort tjón hafi orðið. Annar fulltrúi segir drónann hafa fallið til jarðar nærri öryggisgirðingu umhverfis sendiráðið. Nokkrar klukkustundir eru síðan eldflaug og dróna var beint að sendiráðinu. Yfirvöld í Kúveit og Sádi Arabíu segja hvort í sinni tilkynningu loftvarnarkerfi landanna hafa stöðvað eldflauga- og drónaárásir í uppsiglingu.