Áfrýjunardómur Knattspyrnusambands Afríku hefur úrskurðað að Marokkó sé Afríkumeistari í fótbolta í stað Senegal, sem sigraði 1:0 eftir mikla dramatík í framlengdum úrslitaleik 18. janúar. Knattspyrnusamband Marokkó kærði úrslitin og niðurstaðan er sú að leikmenn Senegal hafi brotið gegn reglum knattspyrnusambandsins með því að yfirgefa leikvöllinn án heimildar dómara. Leikurinn tafðist um sautján mínútur þegar flestir liðsmenn Senegal gengu af velli eftir að Marokkó fékk dæmda vítaspyrnu í uppbótartíma venjulegs leiktíma, sem þeim þótti ósanngjörn. Sadio Mané, leikmaður Liverpool og fyrirliði Senegals, sannfærði sína menn þó um að koma aftur á völlinn og Brahim Diaz gat þá tekið vítaspyrnu Marokkó, sem hann klúðraði. Pape Gueye skoraði fyrir Senegal á fjórðu mínútu framlengingar, sem reyndist eina mark leiksins, og töldu Senegalar sig því Afríkumeistara öðru sinni. Pape Thiaw, aðalþjálfari Senegal, hefur síðar viðurkennt að það hefðu verið mistök „í hita leiksins“ að kalla liðið af velli. Gianni Infantino, forseti FIFA, fordæmdi ákvörðun þjálfarans og Walid Regragui, þjálfari Marokkó, sagði athæfið „skammarlegt“ og vanvirðingu við afrískan fótbolta. Honum var sagt upp störfum 5. mars, fjórum mánuðum áður en heimsmeistaramótið í fótbolta hefst. Niðurstaða Knattspyrnusambands Afríku er að lið Senegal hafi gerst brotlegt við regluna sem bannar brotthvarf af velli án samþykkis dómara og því er Marokkó úrskurðað sigurvegari með þremur mörkum gegn engu líkt og reglur kveða á um. Liði sem brýtur þannig af sér skal einnig vísað varanlega úr keppni og þau verða örlög Senegal. Ekki þykir ólíklegt að vonsviknir Senegalar vísi úrskurðinum til Alþjóða íþróttadómstólsins í Lausanne í Sviss.