Mette-Marit krónprinsessu vikið til hliðar sem verndari Samtaka bókasafna

Samtök bókasafna í Noregi hafa ákveðið að slíta á öll tengsl við Mette-Marit krónprinsessu sem hefur verið verndari þeirra. Ástæðan er sú að krónprinsessan hafi svikið loforð um að greina heiðarlega frá tengslum sínum við bandaríska kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein. Þannig hafi Mette-Marit farið á bak við norsku þjóðina og samtökin. Stjórn samtakanna hafi rætt áhyggjur sínar af ósannsögli prinsessunnar við kjörna fulltrúa og því vantrausti sem hafi skapast þegar á daginn kom að hún átti í mun nánari samskiptum við Epstein en gefið hafði verið í skyn. Athæfi Mette-Marit samræmist ekki gildum samtakanna sem telji ekki við hæfi að hún verði áfram verndari þeirra. Samtökin hafi þó fullan skilning á þeim mannlega harmleik sem málið sé. Upplýst hefur verið að kært hafi verið með Mette-Marit og Epstein og að hún hafi átt í samskiptum við hann síðar en fullyrt hefur verið. Hún hefur nokkrum sinnum beðist afsökunar á sambandinu við hann , eftir að málið komst í hámæli að nýju, þegar bandaríska dómsmálaráðuneytið birti milljónir skjala tengdum Epstein. Fleiri norsk samtök og góðgerðafélög hafa ákveðið að segja skilið við Mette-Marit vegna málsins.