Tveir af fjórum þingmönnum Siumut hafa sagt skilið við flokkinn

Forseti grænlenska þingsins hefur yfirgefið jafnaðarmannaflokkinn Siumut, eftir að flokksforystan sagði skilið við stjórnarsamstarfið á föstudag. Því hefur flokkurinn misst helming þingmanna sinna. KNR fjallar um brotthvarfið. Kim Kielsen hefur starfað með flokknum í meira en fjóra áratugi og var formaður hans og landsstjórnarinnar um nokkurra ára skeið. Hann fetar nú í fótspor Vivian Motzfeldt, fyrrverandi utanríkisráðherra, sem kvaddi flokkinn í gær . Kielsen kveðst taka heilshugar undir með Motzfeldt að ákvörðun flokksforystunnar væri röng, óskiljanleg og byggði ekki á nokkrum skynsamlegum rökum. Hann segir í yfirlýsingu útilokað að hunsa umboð kjósenda enda hafi markmið Siumut alltaf verið að leggja lóð á vogarskálar framfara á Grænlandi. Landið standi á tímamótum og því sé samstaða brýnni en nokkru sinni fyrr og kjósendur hafi ætlast til að hann sjálfur stæði í stafni. Þeim sem vilji reka fleyg í samstöðuna megi aldrei takast það. Gengi Siumut hefur dalað á seinustu árum, hann fékk fjóra menn kjörna á síðasta ári samanborið við tíu fjórum árum fyrr og hann á aðeins tvo þingmenn eftir brotthvarf þeirra Kielsen og Motzfeldt.