Miguel Díaz-Canel Kúbuforseti boðar óbugandi andstöðu gegn næstum daglegum hótunum Bandaríkjanna um aðgerðir gegn eyríkinu. Miguel Díaz-Canel Kúbuforseti segir öllum atlögum verða mætt af festu.EPA / Ernesto Mastrascusa Í yfirlýsingu á X sagði forsetinn að fari allt á versta veg geti landsmenn huggað sig við að öllum atlögum verði svarað af mikilli festu. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagðist á mánudag trúa að honum veittist sá heiður að „yfirtaka og frelsa Kúbu“ með einhverjum hætti. Djúp efnahagskreppa ríkir á Kúbu og hefur dýpkað enn eftir að Trump setti hafnbann á olíuflutninga þangað. Hann segir Kúbu standa á brauðfótum og kveðst telja sig geta gert þar hvað sem hann lystir.