Íranskir ráðamenn hóta enn harðari aðgerðum eftir að Ali Larijani, yfirmaður öryggisráðsins, var veginn í loftárás Ísraelshers í gær. Enginn jafn háttsettur Írani hefur verið drepinn í árásum Ísraela og Bandaríkjamanna síðan í febrúar. Amir Hatami, yfirmaður heraflans, segir að Ísraelsmenn muni með afgerandi hætti finna fyrir hefndum Írana. Leiðtogar byltingarvarðarins segjast þegar hafa skotið eldflaugum að Ísrael og tíðindi hafa borist af manntjóni í stórborginni Tel Aviv. Að minnsta kosti sex hafa verið drepnir og á þriðja tug særst í loftárásum Ísraelshers á líbönsku höfuðborgina Beirút í nótt. Þarlendir miðlar segja Ísraelsher ekki hafa varað við yfirvofandi árás, ólíkt því sem verið hefur. Engan ástralskan hermann sakaði í eldflaugaárás Írana á flugherstöð í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Anthony Albanese, forsætisráðherra Ástralíu, segir minni háttar skemmdir hafa orðið vegna elds í svefnskálum og læknamiðstöð.