Gul viðvörun á Vestfjörðum með sunnan hríð

Gul viðvörun tekur gildi á Vestfjörðum klukkan 22 í kvöld vegna sunnan hríðar. Það gengur í sunnan og suðvestan 15 til 23 metra á sekúndu með snjókomu og skafrenningi.