Fjölgun nýskráninga bíla ekki rakin til skyndilegrar og aukinnar eftirspurnar heldur vörugjaldshækkunar

Rúmlega 66% fleiri nýir bílar voru skráðir á götuna fyrstu 10 vikur þessa árs en á sama tíma fyrir ári. Alls voru 2.639 nýir bílar skráðir þessar tíu vikur og ríflega helmingur þeirra í janúar. Alls voru 2.639 nýir bílar skráðir fyrstu tíu vikur ársins og ríflega helmingur þeirra í janúar.Ruv.is / Anton Brink Bílgreinasambandið rekur fjölgunina ekki til skyndilegrar, aukinnar eftirspurnar, heldur fyrst og fremst til þess að fyrir áramót voru margir bílar, einkum bílaleigubílar, tollafgreiddir vegna yfirvofandi hækkunar vörugjalda. Þeir hafi síðan verið skráðir og teknir í notkun í janúarbyrjun. Bílaleigur hafa keypt 64% nýskráðra bíla það sem liðið er árs. Alls hafa 905 tengiltvinnbílar verið skráðir þessar vikur, 779 Hybrid-bílar og 733 hreinir rafbílar.