Líkamsárás og þjófnaður á heilsugæslustöð

Líkamsárás var framin á heilbrigðisstofnun í Háaleitishverfi í gærkvöld eða nótt og einnig þjófnaður að því er segir í morgunskeyti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglan hafði afskipti af ökumönnum í margskonar ástandi.Birgir Þór Harðarson Einnig var farið ófrjálsri hendi um verslun í Laugaráshverfi. Að öðru leyti virðast verkefni lögreglu einkum hafa hverfst um afskipti af ökumönnum í ýmiss konar ástandi, almennt eftirlit og aðstoð við borgarana. Alls gistu átta fangageymslur í morgun.