Rubio segir ekki standa til að steypa forsetanum Díaz-Canel af stóli — það séu falsfréttir

Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna þvertekur fyrir að bandarískir embættismenn hafi hvatt Kúbverja til að steypa forsetanum Miguel Díaz-Canel af stóli. Umfjöllun New York Times þess efnis, sem birtist á mánudag, sé falsfrétt sem byggi á blekkingum loddara sem eitthvað þykist vita. Blaðið sagði ekki standa til að kommúnistastjórnina eins og hún leggur sig heldur aðeins að losna við harðlínumanninn Díaz-Canel sem stæði í vegi fyrir öllum breytingum. Rubio er sonur kúbverskra innflytjenda og hefur ekki farið í grafgötur með að hann vilji losna við stjórnina sem setið hefur að völdum frá byltingu Fídels Castró 1959. Þingmenn af kúbverskum uppruna, flestir Repúblikanar, hafa lengi krafist aðgerða gegn stjórnvöldum á Kúbu. Díaz-Canel boðar óbugandi andstöðu gegn því sem hann segir næstum daglegar hótanir Bandaríkjanna um aðgerðir gegn eyríkinu. Fari allt á versta veg geti landsmenn huggað sig við að öllum atlögum verði svarað af mikilli festu. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagðist á mánudag trúa að honum veittist sá heiður að „yfirtaka og frelsa Kúbu“ með einhverjum hætti. Djúp efnahagskreppa ríkir á Kúbu og hefur dýpkað eftir að Trump setti hafnbann á olíuflutninga þangað. Hann segir Kúbu standa á brauðfótum og kveðst telja sig geta gert þar hvað sem hann lystir.