Ofbeldi innan stofnana er ekki óþekkt hér á landi frekar en annars staðar. Í gegnum tíðina höfum við fylgst með brotaþolum segja frá sinni reynslu, oft áratugum eftir ofbeldið. Við þekkjum Landakotsmálið, Hjalteyri, Laugaland, Breiðuvík, brotaþola Karls Vignis, fyrrum biskups og Skeggja Ásbjarnarsonar svo dæmi séu tekin.