Finnur Bjarnason, óperustjóri nýrrar þjóðaróperu, skilur gagnrýni á ráðningu sína en telur sig þó ekki hafa haft forskot á aðra umsækjendur vegna stöðu sinnar. Mikilvægast sé að vera með hreina samvisku. Samvinna við Þjóðleikhússtjóra hafi gengið vel og trúir hann að muni ganga vel áfram.