Hópur „ungmenna“ í skólahljómsveit Akraness hittist eftir þrjátíu ára hlé til að æfa gamla lagalistann. Að vísu eru ungmennin öll á miðjum aldri en vináttan frá því í tíð sveitarinnar hefur haldist æ síðan. Hún spilaði á tyllidögum á Akranesi og hélt einnig utan í tónleikaferðir. Andrés Helgason, stjórnandi sveitarinnar, hefur ekki stjórnað hópnum frá því fyrir aldamót. „Ég var ekki síður með fiðring í maganum þegar ég hitti hópinn aftur“. Spurningunni um hvort þetta sitji í líkamanum líkt og að kunna að hjóla, svarar Andrés á þá leið að það sé rétt að mörgu leyti. „Maður fær sömu harðsperrurnar eins og ég man eftir þeim.“ Sveitin heldur tónleika á Akranesi 22. mars og það er nokkuð víst að þar verður stemning og spilagleði.