Stóra upplestrarkeppnin fagnar þrjátíu ára afmæli í ár. Keppnin hóf göngu sína í Hafnarfirði 1996. Keppnin er fyrir nemendur í 7. bekk grunnskóla og í gegnum árin hafa þúsundir tekið þátt. Upphaf keppninnar má rekja til þess þegar grunnskólarnir voru færðir til sveitarfélaganna, frá ríkinu. Þrjátíu ár eru frá því Stóra upplestrarkeppnin hóf göngu sína í Hafnarfirði. Stofnandi keppninnar ætlar að láta staðar numið. Hún segir lestur barna vera á uppleið. Vildu efla framsögn og tjáningu nemenda Ingibjörg Einarsdóttir, stofnandi keppninnar, ásamt Þórði Helgasyni og Baldri Sigurðssyni, sáu fram á tækifæri til að efla framsögn og tjáningu meðal grunnskólanemenda. Þau héldu námskeið með kennurum 7. bekkja í grunnskólum Hafnarfjarðar og héldu svo upplestrarhátíð. „Og við buðum Birni Bjarnasyni, sem þá var menntamálaráðherra. Og hann var mjög hrifinn og bauðst til að styrkja okkur eitthvað áfram. Ef við svona bjóðum næstu sveitarfélögum með líka,“ segir Ingibjörg. Fimm árum síðar voru öll sveitarfélög með Fimm árum síðar var Stóra upplestrarkeppnin haldin í öllum sveitarfélögum landsins. Raddir, samtök um vandaðan upplestur og framsögn, héldu utan um keppnina í 25 ár. Þá var ákveðið að sveitarfélögin tækju við rekstri keppninnar. Ingibjörg segir að öll sveitarfélög hafi haldið áfram með keppnina. „Tilgangurinn var náttúrulega bara að auka svona framsögn og tjáningu. Að koma fram og þurfa að standa fyrir framan fólk og tjá sig og lesa fyrir fólk.“ Ingibjörg hafði áður verið grunnskólakennari og kenndi þar framsögn og tjáningu. Hún sagðist hafa séð hve gott það væri fyrir nemendur að fá þjálfun í að standa fyrir framan fólk. Hún hefur séð fjölmörg dæmi þess að þátttaka í keppninni hafi fylgt fólki út í lífið. Árið 2010 kom Ingibjörg Litlu upplestrarkeppninni, fyrir nemendur í 4. bekk, á fót og árið 2013 fékk hún Fálkaorðuna fyrir framlag til eflingar á lestrarhæfni grunnskólanema. „Mér finnst börnin alltaf jafn dásamleg þegar þau koma,“ segir Ingibjörg. Finnst mikilvægt að hafa námskeið fyrir kennara Ingibjörg segir mikilvægt að kennarar, bæði í 4. bekk og 7. bekk, fái þjálfun í að kenna börnum að koma fram. „Það þarf náttúrulega alltaf að halda þessu vakandi. Foreldrarnir að vera duglegir líka.“ Á heimasíðu keppninnar er handbók fyrir kennara og sveitarfélög sem vilja halda vel utan um keppnina. Að mati Ingibjargar er lestur ekki á niðurleið meðal barna. „Það er náttúrulega mikið talað um að lestur sé á niðurleið og svona. Sjálfsagt eitthvað, ég veit það ekki. Mér finnst bara fullt af börnum lesa mikið.“ Hvernig tilfinning er það að hætta eftir öll þessi ár? „Maður verður nú einhvern tímann að hætta. Það er nú bara þannig og nú fannst mér bara tímamót.“