Hæðarhryggur þokast austur yfir landið í dag og verða vindar því almennt hægir og bjart með köflum. Áfram verður þó norðvestan strekkingur með stöku éljum norðaustanlands fram yfir hádegi.