Snerpa: vinnur að tvítengingu Suðureyrar, Bolungarvíkur og Hnífsdals með ljósleiðara og rafstrengjum

Snerpa á Ísafirði hefur sent Ísafjarðarbæ erindi vegna fyrirhugaðar strenglagningar frá Staðardal í Súgandafirði, fyrir Sauðanes, yfir Klofningsheiði og niður Klofningsdal að Flateyri. Í tengslum við átaksverkefni Innviðaráðuneytisins um að tvítengja helstu þéttbýlisstaði á Íslandi við ljósleiðara hefur Snerpa tekið þátt í athugunum með Öryggisfjarskiptum á því hvernig Suðureyri, Bolungarvík og Hnífsdalur verði tvítengd við […]