Svíar lækka matarskatt – Norð­menn ræða – en hvað með Ís­land?

Verðbólgan leikur fleiri grátt en íslenska neytendur um þessar mundir. Í sumum nágrannalanda okkar hefur þegar verið gripið til aðgerða eða umræða um þær í gangi. Í Svíþjóð hefur verið ákveðið að lækka virðisaukaskatt á matvörur úr 12% í 6% tímabundið, frá 1. apríl og út árið 2027. Samhliða hafa eldsneytisgjöld verið lækkuð, sem styrkir kaupmátt neytenda og samkeppnisstöðu landsins. Svíar reikna með að áhrifin komi fljótt fram í verslun þegar neytendur í nágrannalöndum beina innkaupum sínum til landsins.