Líbanska heilbrigðisráðuneytið segir að 12 hafi verið drepnir í loftárásum Ísraelshers á Beirút í dag. 41 særðist. Herinn hefur í dag gert árásir á hverfin Basta og Zuqaq al-Blat í miðborg Beirút. Ísraelsher hefur sagt árásir sínar í borginni og úthverfum hennar beinast gegn Hezbollah-samtökunum og þeim sem fjármagna starfsemi samtakanna. Fréttamaður BBC á vettvangi segir að síðustu daga hafi helstu skotmörkin verið í suðurhluta borgarinnar, á því sem kalla má helsta athafnasvæði borgarinnar. Háttsettur embættismaður Hezbollah féll í árásunum Í dag hafi árásir aftur á móti verið gerðar í miðborg líbönsku höfuðborgarinnar og að allt í kring séu fyrirtæki og hótel. Bygging sem ráðist hafði verið á nokkrum sinnum á undanförnum dögum hrundi eftir árás í morgun. Ísraelar hafa gert árásir í miðborg líbönsku höfuðborgarinnar Beirút í dag. Hezbollah-samtökin segja háttsettan embættismann hafa fallið í árásunum. Íranar halda áfram að beina flugskeytum sínum að Persaflóaríkjunum. Hezbollah-samtökin segja í yfirlýsingu að Mohammad Sherri, háttsettur embættismaður samtakanna, hafi farist ásamt eiginkonu sinni í árásum dagsins á Beirút. Yfirvöld í Líbanon segja að rúmlega milljón manns séu á flótta innanlands eftir árásir Ísraelshers. Íbúar í höfuðborginni hafa leitað út á götur til að flýja loftárásir, sem dunið hafa nánast stanslaust á borginni síðustu tvær vikur og margir hafast við í tjöldum. Íranir halda áfram að beina flugskeytum að Persaflóaríkjum Sprenginga hefur orðið vart víða í Mið-Austurlöndum í dag og í nótt. Í Tel Aviv í Ísrael voru tveir drepnir í árásum Írana. Stjórnvöld í Tehran höfðu hótað enn harðari árásum á Ísrael og bækistöðvar Bandaríkjanna eftir að yfirmaður öryggisráðs landsins var ráðinn af dögum í gær. Loftvarnarkerfi í Persaflóaríkjunum vörðust loftárásum Írana, meðal annars í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, Kúveit, Sádi-Arabíu og Katar. Loftvarnarflautur ómuðu einnig í Barein. Íranskir miðlar segja að herir Ísraels og Bandaríkjanna hafi ráðist á skotmörk víða í landinu. Auk höfuðborgarinnar Tehran hafi árásir verið gerðar á borgina Hamedan og í Lorestan-héraði í vesturhluta landsins og í Fars-héraði í suðurhlutanum. Þá hefur Bandaríkjaher gert árásir með djúpsprengjum á eldflaugastöðvar Írana nærri Hormússundi.