Foreldrar leikskólabarna á Akranesi fá aðstoð frá fagaðilum

Starfsmaður leikskóla á Akranesi sætir rannsókn lögreglu vegna gruns um kynferðisbrot gegn barni. Fundað var með foreldrum barna á leikskólanum í gær. Lögreglan á Vesturlandi segir rannsókn málsins í algjörum forgangi. Akranesbær vinnur samkvæmt verkferlum sem voru hannaðir eftir að starfsmaður á leikskólanum Múlaborg í Reykjavík var handtekinn, og síðar ákærður, fyrir kynferðisbrot gegn barni. Foreldrar fengu fund með fagaðilum og leikskólastjórnendum Sigrún Ósk Kristjánsdóttir, upplýsingafulltrúi Akranesbæjar, segir að á fundi með foreldrum barna á leikskólanum í gær hafi fulltrúar frá lögreglunni, barnavernd og sálfræðingar auk leikskólastjórnenda upplýst foreldra. Fundurinn var haldinn til að gefa foreldrum aðgang að sérfræðingum og svara spurningum eins og hægt er. Sigrún Ósk segir að í kjölfar þess að starfsmaður leikskólans Múlaborgar í Reykjavík var handtekinn, og síðar ákærður, fyrir kynferðisbrot gegn stúlku á leikskólanum, hafi Akranesbær farið í markvissa vinnu við gerð verkferla hjá bænum. Þeir verkferlar hafi nýst þegar starfsmaður leikskóla bæjarins var handtekinn á mánudag. Ásmundur Kristinn Ásmundsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vesturlandi, staðfestir í samtali við fréttastofu að starfsmaður á leikskóla á Akranesi hafi verið handtekinn á mánudag vegna gruns um kynferðisbrot gegn barni. Ásmundur segir rannsókn málsins á viðkvæmu stigi og að lögreglan muni ekki veita frekari upplýsingar að svo stöddu.