Ein­stefna komumegin við Kefla­víkur­flug­völl

Hluti af vegi sem liggur á milli flugstöðvarbyggingar Keflavíkurflugvallar og langtímabílastæða norðan við hana verður einstefna með framkvæmdum sem hófust í dag. Breytingarnar eru sagðar eiga að auka öryggi vegfarenda og bæta umferðarflæði.