Síðan ég steig fram og sagði frá dvöl minni í Bakkakoti hef ég talað skýrt um það sem blasir við. Kerfið sem á að vernda börn, virkar ekki eins og okkur hefur verið talin trú um að það virki. Það þarf ekki smávægilegar lagfæringar. Það þarf róttæka endurnýjun.