BYKO og Tækni­skólinn sam­eina krafta sína á Verk og vit

Stórsýningin Verk og vit hefst á morgun fimmtudag í Íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal og stendur yfir fram á sunnudag. Þetta er í sjöunda sinn sem sýningin er haldin en hún er frábær vettvangur til að sjá allt það nýjasta í byggingariðnaði, mannvirkjagerð og skipulagsmálum og kynna sér um leið spennandi vörur og þjónustu.